Ég stend hér í skugganum.
Í fjarska sé ég sólina skína á hraust andlit.
Ég sé hana skína á þig.
Ég get mig hvergi hreyft þótt mig langi til þín,
þar sem sólin skín.
Þetta er minn heimur,
geislarnir munu aldrei ná til mín.