Nú fer ég að blunda
og draumana stunda,
það er nú farið að svífa á mig.
Enn magnast þreytan
og minnkar þá streitan,
nú er ég komin með áhrif á þig

Viltu ekki blunda
og draumana stunda?
Er ekki farið að svífa á þig?
Magnast þín þreyta?
Minnkar þín streita?
Þú hefur strax fengið áhrif á mig.