Á píanóið ég æfi til hlítar,
frammi ert þú og slærð á þinn gítar
pabbi kemur þá spilandi á flautu
sem hann lærði á frá barnsbeini blautu

Mamma hún bætist við spilandi á selló
hún spilar fallegt lag sem heitir “yellow”
Systirin okkar hún syngur sem galin
já rödd hennar er þá allur nótnaskalinn

Við missum andlitin,var þetta hún?
hún sem var alltaf svo þung á brún.
Er þetta meðfætt,var rödd hennar falin?
Okkur fannst hún nú ekki svo galin!