Er með gamalt sár sem ég kroppa í og fæ ekki gróið,
geymi gamlar myndir sem ég fæ ekki gleymt,
man gamlar sögur sem verða ekki aftur sagðar…

eins og að yrkja ljóð sem aldrei verða lesin,
safna ryki í skúffunni,
vesna upp,
hverfa.