Ég vil að hún komi
hristi mig rækilega til
og segi mér að þetta sé í raun
það besta sem fyrir mig hefur komið.
Ég vil að hún komi
með langa þögn í farteskinu.
Ég vil að hún komi
leyfi mér að falla inn í mig
en þó sem heilli manneskju
með alla anga úti.
Ég vil að hún komi
aftur…