Það blóm sem fæddist
síðastliðið haust
óx í vetur
og varð að tré.
Það spratt svo hratt
og það óx svo vel
að það hefði orðið
hin stærsta eik
og lifað í hartnær
hundrað ár
en það var
fellt í gær.