Þú vaknar
skyndilega

eins og borgin
úr dvala
á sólríkum vordegi

hendir þér úr fötunum
og sverð
að svona skulu allir dagar verða

en á morgun
ertu kominn með kvef
og rigningin glymur á gluggunum