Hún leitar og hún finnur
mig, viljalausann
Hún gefur og ég þigg
bara til að sjá
Hún elskar

Hún snertir og hún grætur
Ég snerti
Þurka burt tárin og hugsa
um hana við læstar dyr
Ég elska

En ég villist
sit í fölbláum bjarma
Hún bíður eftir mér
nakin á djúpbláum fleti
Hún grætur

Hún leitar og hún finnur
hann, viljugann
Ég horfi út úr fölbláum bjarma
sljóum augum
Ég græt

Lifi í fölbláum bjarma
hreyfi mig aðeins
til að strjúka hendi
yfir djúpblátt tómið