Ég sá þig úr fjarska,
þú ert svo fullkomin.
Ég fór nær,
og sá enn betur hvað þú ert falleg.
Svo hringdi bjallan og ég fór inn í tíma.

Ég leit yfir bekkinn og þar varst þú,
lýstir upp allan bekkinn.

Eftir tíma fór ég út á eftir þér,
ætlaði að tala við þig,
búinn að mana mig upp í það alla kennslustundina.
Svo sá ég strák koma labbandi og kyssa þig.

Ég fraus.
Auðvitað ert þú of góð fyrir mig.