Á öðrum stað
Í öðrum heimi,
sótsvartir eldar
steikja mig.

Sýra svíður
í sætum æðum,
grágrænir eldar
grilla mig.

Smámsaman svertir,
svertir fyrir sólu
sál mín fer í frí.

Á þessum stað
í þessum heimi.
Ég á mér því,
einskis von.