Hún er sérstök,
hugmyndarík og klár,
ég er ekki hún.

Hún er vinsæl,
hamingjusöm og friðsæl,
ég er ekki hún.

Hún er falleg,
greind og skemmtileg,
ég er ekki hún.

Hún er döpur,
niðurbrotin og þunglynd,
ég er hún.