til ömmu

Ekki fara strax

Amma ekki fara frá mér
Ég vil ekki vera ein
Amma ég vil hafa þig lengur
Ég vil að þú sjáir mig stækka.

Án þín er lífið svo erfitt
Ég get ekki leitað til neins
Án þín líður mér illa
Ég vil ekki vera án þín.

Þú færir gleði inn í líf mitt
Ég er ánægð með þér
Þú segir svo góðar sögur
Ég vil ekki missa þig.

Það eina sem ég vil er að hafa þig hjá mér
Elsku guð, ekki taka ömmu
Það eina sem ég vil er nokkur ár í viðbót
Elsku guð, leyfðu mér að passa ömmu.

Amma ekki fara frá mér
Ég vil ekki vera ein
Amma ég vil hafa þig lengur
Ég vil að þú sjáir mig stækka.

Án þín er ég ein
Ég get ekki hugsað
Án þín er eins og allt sé búið
Ég get ekki andað.

Þú gerir mér svo margt gott
Ég elska þig svo mikið
Þú ert besta amma í heimi
Ég lifi ekki án þín.