Áður þú komst
var líf mitt tómt rugl
komst svífandi að
tindrandi fugl

Þú bjóst þér til stað
hreiður í hjarta
í mínu hjarta
og einskis annars

Mér hlýnaði, hitnaði
blæddi, svo gott
blæddi því svarta
sem gerði mér illt

Ég trúði á allt gott
ég vissi af ljósi
ekkert skipti máli
þú, og hann ég.