Það er útaf þér sem ég get ekki sofið
Það er útaf þér sem ég get ekki hvílst
…Það er allt þér að kenna

Ég er hætt að nærast á ást þinni
Ég er hætt að nærast á gleði þinni
…Það er þitt vandamál

Mig er hætt að langa að faðma þig
Mig er hætt að langa að elska þig
…Það er ekki mér að kenna

Afhverju fórstu frá mér þegar illa stóð á
Afhverju fórstu frá mér þegar ég grét
…Það er allt annað mál

Þú gerðir þetta af illsku!