Fortíðin sem tvíeggja sverð
milli tveggja manna
Handband og ýkt bros
Fastar og breiðar
Fastar og breiðar
Hvernig augun mætast
Líkt og þau stari í heitt bálið
Verða að líta undan
Sem þau gera og límast við hlutleysið

Svo Þögnin
Helvítis þögnin sem gargar á þá
Aumingjar!!!!!!!!!!!!!

Falskar aðstæður
Ósviknar tilfinningar
og þrúgandi löngunin í að rífast ekki
bara snarhalda kjafti, viðhalda orkunni og vona
að einhvern tímann verði gullið ekta