þetta er ekki stuðlað neitt að viti en samt nokkuð ánægður með þetta…endilega commentið


mig vantar orku, vantar stuðning og eitthvað til að horfa fram til/
ég brýt reglur um mannlega mennsku, ég á ekki skilið að sjá fleiri andlit/
ég reyni að standa í lappirnar, en ég fell fyrir stelpum í sífellu/
horfi áfram sjá mig breytast úr skynsömum strákling yfir í mellu/
skiptir ekki hver bankar og hvað hún vill, ég mun gleypa kolruglaður/
er ég haldin fötlun í samskiptum eða er ég bara ekki einnar konu maður/
ég get gleymt stelpum á svipstundu stelpum sem ég vil elska/
horfi aðgerðalaus á mig breytast í það sem ég vill ekki verða/
en afhverju er ástin svona veik, afhverju stórnar það mér ekki
finnst ég alltaf svíkja eigin málstað, er ég handsala ást með blóðadaða hendi/
rétt komin upp úr holunni og rétt þegar við vitum það/
sé ég án vitundar, sjálfan mig ósjálfrátt falla aftur ofan í gryfjuna/
hvers vegna freistar mín allt sem er í fari andstæðna sjálfs míns/
horfi ég framt til betri tíma, eða eru mínir edrú draumar bara tálsýn/
suma dreymir um ást í eftirvæntingu um eitthvað gott þar/
en allt sem ég elska lendir á mér og nú er ég um það bil að brotna/
get lýst hamingjunni, sem breytist skyndilega í hausverk/
held alltaf að ást mín sé bara flókin, en ljótleiki er það sem hún í raun er/
vilt ekki vita hvað mínir edrú draumar boða, vilt ekki sjá það sem ég skrifa þarf/
sumir vilja ást í lífið en hvort viltu elska eitthvað eða bara lifa af/