Einu sinni fór Kalli út í búð og kom aldrei aftur. Eftir nokkur ár
kom í ljós að hann hafði ekki farið út í búð heldur flutt til Kína.
Hann er núna keisari Kína og valdamikill maður


Gott er keisari Kína að vera
nóg af mat að borða
kona, krakkar og keisaradæmi
er hægt að krefjast nokkurs meira?

Jú hægt er það Keisari góður!
Gott væri að þú elskaðir börnin
en ekki bara í þér bannsett görnin!
Bannaðu mér nú að opna munninn því ei vil ég deyja.

Ekki skaltu þá opna munn þinn
því mikinn skaða hefur þú gert.
Þú móðgaðir keisara þinn og
særðir börn mín!

……………………
……………………
……………………
……………………!

Nú skil ég ei hvað þú segir
en það er vegna lokaða munnsins
þá tölum við ei meira í ljóðum.
Skrifaðu það sem þú tjá mér vilt hér á þetta litla blað.