ÞEGIÐU ÞEGAR ÉG TALA VIÐ ÞIG!
SÉRÐU EKKI AÐ ÉG ER AÐ STRAUJA!!!!
SLEIKTU!!!!
SLEIKTU DJÖFULS BORÐIÐ AUMINGINN ÞINN!!!
hví græturðu?
mamma elskar þig,
þú ert alltaf litla barnið hennar mömmu,
litli spörfuglinn hennar mömmu.

Litli Fugl í Búri,

hún leyfir þér kannski ekki að fljúga en hún leyfir þér að syngja.
En ekki of hátt,
þú gætir vakið grannana.