Þetta er nýtt haf lífsins.

Ný byrjun.
Nýjir fiskar og nýtt fiskabúr
fyrir fiskana til að synda í.

Aldan hylur nýju byggingarnar.

Þetta er munstur eftir gamlan mann
sem situr á bryggjunni í nútímanum.

Öskur
sem verður að tísti
sem verður að þögn.

Áratugum seinna
glitrar þó í ljós.

Þetta er nýtt haf lífsins.
_________________________________________________