Við leituðum lengi
að lífinu er áður hér var.
Í myrkrinu leyndist sú magt
að máttur þess þvarr.

Við gengum um dimman dal
með dára við hlið.
Sáum djöfla og drauga
er dönsuðu um Helvítis svið.

Í þrælanna fansi þjáðumst við
þjökuð og sveitt.
Bárum höldanna hlekki
er hlífðu oss ekki við neitt.

Við uppskárum angist og ótta
í áranna rás.
Í válogum vímunnar
veltumst á óhreinum bás.

En eymdin varð upprætt
er Almættið veitti oss líkn
og leysti að lokum
und logandi djöflanna fíkn.