Elskan, haltu utan um mig
þótt þú viljir það ekki
þó að við vorum sköpuð öðruvísi
þá vorum við sköpuð til að vera saman

Það hefur verið framleiðslugalli
ég lenti á röngum stað
það er einhver annar fyrir mig
ég vil hendur annars

En elskan, þú getur ekki farið
skilið mig eftir
ég held að mér finnist mér tilgangslaus án þín

Nei, þú getur fundið annan
eins og ég mun finna annan
ég vil einhvern annan
og ég veit hvern
hann er þarna hinum megin
að blikka og veifa til mín
með vísifingri

þessi þarna?
en hann er svo rifinn og tættur
og hann er hægri?
hvað ætlaru að gera með hægri hanska?
þú ert hægri sjálfur?

já en hann er svo sætur

sætur?
frekar rifinn og tættur

það er ekki útlitið sem skiptir máli

hvað, heldur þú
að hann sé einhvað skárri innan frá

hann er örugglega ekki notaður lengur
og það á að henda honum
en hvað með það
ekki fara
við vorum sköpuð til að vera saman

sköpuð smöpuð
ég vil ekkert með þig hafa

æ þegiðu
þú ert vondur
helvítis útskitni vinnuvettlingur

snobbaði leðurhanski
bless, ég er farinn
JIHAA

jei, núna er hann fastur á gólfinu
ekki getur hann gengið
fífl



eins og hugsaði ljóðið þá átti það ekki að vera svona, og endirinn, ja ég vissi ekki í fjáranum hvernig ég ætlaði að enda það.
endurrita það kannski seinna
Kíkið endilega á síðuna mína www.folk.is/nixey