Þegar sólin skín á ný..
finnst mér eins og ekki einungis sé komið sumar.
Heldur líka nýtt líf, líf gleði, líf ástar, líf sorgar,
líf tára…daglegt líf. Allt uppá nýtt.

Ekkert hefur breyst, samt er önnur sól á lofti…
Hvaðan kom þessi birta sem lýsir upp innviði sálar minnar?
Hver er þessi Sól, þessi eilífa birta og hlýja…
Þessi Sól sem kemur, færandi ást og umhyggju.
Hver ertu?