Ég fann vængbrotinn fugl
Fuglinn söng enn fagra söngva
en var hættur að fljúga
Ef ég hefði ekki tekið eftir honum
hefði hann á endanum hætt að syngja
og svo loks dáið

Ég tók fuglinn með mér heim
og ég hjúkraði honum
Ég passaði upp á hann
eins og þegar hann var ungi
áður en hann lærði að fljúga

Eftir nokkurn tíma
byrjaði brotið að gróa
og að lokum flaug fuglinn aftur

Núna fylgist ég vel með honum
og gái reglulega eftir honum
því ég vil ekki missa hann frá mé