Inn á milli tanna …
stingandi svíðandi
súrealískur slítandi
straumharður straumur
taumlausra dropa
hugsanaleysis og
mótaðra skoðanna
fengin að láni
fengin í arf

hverju sinni
eilífu minni - leiður/reiður
gleiður opinn fyrir augum
gallúpheili jólagjöf ársins
opið hús sendiráðs
í útibúum Sautjáns

-mundu að læsa eyrunum þínum