Ég er guð hinna biðjandi manna
fyrir öðrum ég er ekki neitt
ég er guð hinna trúandi flokka
fyrir öðrum skáldsagan ein

Ég er form sem hugur myndar
ég er dýr eða margir í einu
ég þúsund andlit fólksins
ég er tómið sem er ekki til

ég er það sem hjartað skynjar
ég er það sem hugurinn sér
ég er og var en mun aldrei verða
meir en hugsun ein hjá þér

Allt og ekkert
Alpha og Omega
Upphafið og endir
lífið og dauðinn

þetta er ég
og svo margt, margt fleira
um leið og ég er ekki til