Fyrirgefðu að ég særði þig
ég ætlaði þér ekkert illt
það er erfitt að lifa í lygi
ég bara gat það ekki lengur
ef þú hefðir bara hunsað mig
og reynt að hlusta ekki
þá hefðir þú fattað allt
að ég væri ekki þess virði.

Fyrirgefðu að ég meiddi þig
ég vildi ekki fara strax
það var bara svo erfitt að neita
ég bara gat það alls ekki
ef þú hefðir bara sleppt því að hlusta
og reynt að loka þig af
þá hefði ég ekki sært þig það mikið
að hjarta þitt hætti að slá.