Mig dreymdi sæludraum
um lítinn fagran fugl
með ljósar fjaðrir og græn augu
og regnbogasál

Hann flaug með mig
á framandi slóðir
Við ferðuðumst víða
og skoðuðum margt
en hvergi leið mér samt betur
en undir vængjum fuglsins

Og þegar ég náði loks að sofna
fylgdi draumurinn mér inn í svefninn