Hér, þessi heimur, ekki er
en án þess þó að hann burt fer.
Við lifum hér án grunsemda flest
nema kannski þeir sem vita mest.

Það er vélar er horfa
er við liggjum tengd,
þurfum eigi að borða
og tíminn í hæstu lengd.

Sérstakir liðsmenn
saman vinna að sigri,
hjálp hins eina
er þörf til að ekki komi til meina.

Innan liða leynist
oftar en ekki Loki
sem kemur ávalt í veg fyrir
að ferlinu áfram þoki,
já hið stóra ferli
sem öll við þurfum
til að upplifa það
er áður var,
já áður en við hurfum.
Raunveruleikan sjálfan.

Hvort fólkið er tilbúið
því miður vita það fáir
en það er bjargvættirnir vita
er að frelsunina vilja allir.

Vitneskjan endist aldrei
í þeim öruggu höndum er hún byrjar
því Loka er sjaldan hægt að koma
undir órjúfanlegar þiljar.

Árangursins ber að gæta…
fljótlega og fallega,
í mynd tveggja mynda.

- Shaguar -