Kærleikurinn mestur

Þótt ég talaði tungum manna og
engla,
en hefði ekki kærleika,
væri ég hljómandi málmur eða
hvellandi bjalla.
Og þótt ég hefði spádómsgáfu
og vissi alla leyndardóma og ætti alla
þekking,
og þótt ég hefði svo takmarkslausa trú,
að færa mætti fjöll úr stað,
en hefði ekki kærleika,
væri ég ekki neitt.
Og þótt ég deildi út öllum eigum
mínum,
og þótt ég framseldi líkama minn, til
þess að vera brenndur,
en hefði ekki kærleika,
væri ég engu bættari.

Kæleikurinn er langlyndur, hann er
góviljaður. Kærleikurinn
öfundar ekki.
Kærleikurinn er ekki raupsamur,
hreykir sér ekki upp.
Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar
ekki síns eigin,
hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni, en
samgleðst sannleikanum.
Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar
allt, umber allt.

Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
En spádómsgáfur, þær munu líða undir
lok,
og tungur þær munu þagna, og
þekking hún mun líða undir lok.
Því að þekking vor er í molum og
spádómur vor er í molum.
En þegar hið fullkomna kemur, þá
líður það undir lok, sem er í
molum.

Þegar ég var barn, talaði ég eins og
barn,
hugsaði eins og brn og ályktaði eins
og barn.
En þegar ég var orðinn fulltíða maður,
lagði ég niður barnaskapinn.
Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í
ráðgátu,
en þá munum vér sjá augliti til auglitis.
Nú er þekking mín í molum,
en þá mun ég gjörþekkja, eins og ég er
sjálfur gjörþekktur orðinn.

En nú varir trú, von og gætleikur, þetta
þrennt,
en þeirra er kærleikurinn mestur.

1 Korintubréf 13.1-13<br><br><b>Svalaðu forvitninni</b> <a href=“mailto:gullaj@torg.is”>gullaj@torg.is</a> <a href="http://kasmir.hugi.is/GullaJ">http://kasmir.hugi.is/GullaJ</a