Regnhlífin

Dyrnar opnast,
hann gengur út.

Dregur fram
stóra, svarta regnhlíf
á nokkrum sekúndubrotum.

Hann gengur í burtu,
án þess að líta á nokkurn mann,
án þess að það falli á hann dropi.

Á meðan horfi ég á,
rennandi
eins og blautur hundur.