Hvað átt þú með það,
að birtast óboðinn
og sparka jörðinni óþyrmilega undan fótum mér?

Hver er það sem bað þig
að ganga um
einsog þjófur að nóttu sem verslar með stolin hjörtu?

-Hver er það sem bað mig?
Heyrðu kæra vina
Þitt hjarta er svo sannarlega ekki stolið,
þú fleygðir því í mig eftir fimmta bjórinn.