Það kennir ýmissa grasa
í pípunni á borðinu.
Þegar morguninn gerir árás
með spjóti í gegn um glasið
á gluggakistunni.

Fönguð af augnablikinu
verð ég lítill kettlingur,
og halla undir flatt.

Stari á rauðan skuggann
bjóða lágstemmdum reyknum
upp í eggjandi dans á borðinu.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.