Ég horfi á þig sofa
meðan tíminn
kemur og fer
eins og vindhviða.

Tíminn ber með sér
visku og ljós
harm og dauða.

Ekkert flytur hann
mikilvægara fyrir mig,
enn velferð þína
elsku dóttir mín.