Mér líður eins og
vængbrotnum fugli
sem fljúga vill
frá kvalara sínum.
Þó höfuð mitt
hvíli á brjósti þínu
og sterkir armar
umvefji mig,
er eitthvað
í ástarorðum þínum
sem óróa vekur
í sálu minni.

Augun mín
fyllast tárum
horfi ég
í augun þín.
Ég sé drauma mína
hverfa í svörtum
skuggum sem leynast
djúpt í þeim.
Ástarorð þín
af silkimjúkum
vörum eru sem
stálflísar reknar
í hjarta mitt og brjóst.
Ég veit eins og fuglinn
að þú verður kvalarinn minn