Fólkið í blokkinni minni
er öðruvísi.

Á fyrstu hæð býr maður sem
vinnur við að bóna Matchbox bíla

En á hæðinni fyrir ofan hann
býr gömul kona
sem hefur að áhugamáli
að ræna sjoppur vopnuð
regnhlíf.

Margur afgreiðslumaðurinn
liggur í valnum vegna
suðaustan skúra á
höfuðborgarsvæðinu

( Ort í Desember 2000 )
Loftur Kristjánsson Smári
Alþýðuskáld