Heldurðu virkilega að jólin verði gleðileg?
Það held ég ekki, því þú ert alltaf svo leiðinleg.

Þú situr á rassgatinu allan daginn,
það tekur því ekki’ að fara’ í bæinn.
Hvers vegna ætti ég að feta aftur þessa braut?
Nú er til einskis að festa upp skraut.

Nú er svo komið, ég stóðst bara’ ekki mátið
að halda þessa hátíð án þín.
Því ligg ég hér á miðri götunni
í hnipri eins og Jesúbarn í jötunni.

Hvað var markmiðið með þessu?
Þú keyrðir jeppann minn í klessu.
Ég er viss um að það var viljandi
snjórinn í andlit mitt er byljandi.

Hvers vegna þarftu að vera til?
Ég á nú jól í hörðum hríðarbyl.
Hvað knúði mig til að hata þig?
Maður hugsar nú fyrst og fremst um sjálfan sig.

Þú ert sko meiri háttar belja,
það kom að því að ég þyrfti’ að velja
um að eiga heilög jól með þér
eða liggja undir pappakassa einn með sjálfum mér.
——————————