Tala frá hjarta mínu
Stoppaði útaf lygi frá mínum vörum
Sá hrokann vaxa en pot í hjartað ég var að saxa
Slepp tökum einsog ungi fljúgandi í fyrsta sinn
Sumir tengdu en aðrir dæmdu
Klárt að óttinn fer eisog Megas sagði:
''tíminn líður áfram,og teimir mig á eftir sér''
Var sofandi alltof lengi
Geri þig að mínu fóstri
Dauðinn sker allan vafa um hver getur hvað
Ef ég hefði sagt ást,fyrirgefðu,get ég hjálpað eða eitthvað
Hefðir þú hjálpað öllum og flogið ?
Tár mitt er einskis virði
Fyrir framan dauðanum er ég kannski viljans virði
Fann eitthvað bresta
Sál mín var viljanum yfirsterkari
Rétt áður var reipið eina falska vonin
En þú gerðir það að engu og þú sveikst son þinn
Guð varðveiti minniguna um þína nánd,styrk og sál
Sakna þín ,hugsa um þig
Umhverfis jól og eftir gafst þú nafn nýju ári
Sagan af Dýrlingi sem gaf sig Móðir Jörð
En hvað er málið með tímann Guð ?
Hversvegna áin og hversvegna núna?
Uppí hæstu himinhæðir og lægstu skuggalægðir
Þín raun og leikir græddu sár og hvatarinar spor
Bið að heilsa ömmu,Afa,Jónasi og Jóni

Blixta
The Greatest trick the devil ever pulled,