Þetta er nú bara íslenska útgáfan af ljóðinu mínu sem er að finna á “greinum”. Veskú…

Ég þrái að fá
samþykki hjartans
svo ég geti
fyrirgefið orð þín.

Ég þrái að fá
samþykki sálarinnar
svo ég geti
elskað á ný.

Ég þrái að sjá
augun þín brosa
svo ég geti
átt nýja von.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.