Þegar ég ek út úr svartnættinu
fram á kambabrún
virðist litli bærinn
sem kúrir undir heiðinni
vera risastór borg
Í skini ylhúsa og götuljósa.