Móðurást


Fýkur yfir hæðir og frostkaldan mel,
í fjallinu dunar er komið er él,
snjóskýin þjóta svo ótt og ótt,
auganu hverfur um heldimma nótt
vegur á klakanum kalda.

Hver er hin grátna sem gengur um hjarn,
götunnar leitar og sofandi barn
hylur í faðmi og frostinu ver,
fögur í tárum? En mátturinn þver-
hún orkar ei áfram að halda.

,,Sonur minn góði, þú sefur í værð,
sérð ei né skilur þá hörmunga stærð
sem að þér ógnar og dynja á fer.
Eilífi guðssonur, hjálpaðu mér
saklausa barninu að bjarga.

Sonur minn blíðasti, sofðu nú rótt,
Sofa vil ég líka þá skelfingarnótt.
Sofðu! Ég hjúkra og hlífi þér vel.
Hjúkrar þér móðir svo grimmasta él
má ekki fjörinu farga.”

Fýkur yfir hæðir og frostkalda leið
fannburðinn eykur um miðnæturskeið.
Snjóskýjabólstrunum blásvörtu frá
beljandi vindur um hauður og lá
í dimmunni þunglega þrýtur.

Svo þegar dagur úr dökkvanum rís
dauð er hún fundin á kolbláum ís.
Snjóhvíta fannblæju lagði yfir lík
líknandi vetur – en miskunarrík
sól móti sveininum lítur.

Því að hann lifir og brosir og býr
bjargandi móður í skjólinu hlýr,
reifaður klæðnaði brúðar sem bjó
barninu værðir og lágt undir snjó
fölnuð í frostinu sefur.

Neisti guðs líknsemdar, ljómandi skær,
lífinu bestan er unaðinn fær,
móðurást blíðasta, börnunum háð,
blessi þig jafnan og efli þitt ráð
guð sem að ávöxtinn gefur.

Jónas Hallgrímsson






Þetta er eitt það fallegasta ljóð sem ég hef nokkurntíma vitað, ég klökkna alltaf þegar ég les það
Enginn er verri, þó hann sé smá perri