Frostið bítur kalda kinn
klakanálar stráin príða
lítil kisa læðist inn
leggst á hlýjan koddan minn
úr sér lætur líða
kisulóran Fríða

Undir skáp er skrítin hola
situr ein þar dúllan-krús
hvernig komst hún í mitt hús?
Máski fær hún lítinn mola
mjúkan ost sem bítur fús
snotur lítil hagamús.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.