Gref mig djúpt inní sekúnduna
og leyfi henni að umvefja mig.

Ég er fóstur í móðurkviði.

Hef aldrei verið jafn ófædd
hef aldrei verið jafn laus við heiminn.
Og að sekúndi liðinni
mun ég draga andann í fyrsta sinn.