Þungir straumar streyma niður ánna,
vindurinn fýkur í norður
og ég með.
ég fæ engu ráðið
allir toga í mig
ég er að rifna,
rifna úr ósjálfstæði.

Hver getur bjargað mér,
hver hefur svörin
sem ég leita af?
Er það ég eða
ert það þú?
kannski veit það enginn.

En ég held áfram að fjúka
með staumharðri ánni.

Skyndilega!!!

staumurinn skiptir um átt.
eða var það ég?
Hann er suður,
ég er norður.
Ég berst á móti.
ég finn að áin
er að ná mér aftur.

Ég gefst ekki upp,
ég vil ekki enda þarna.
Ég vil fara mína leið!
Ég anda inn, blæs á rokið
og öskra á ánna.

Skyndilega!!!

þagnar vindurinn
og áin þornar.
ég ligg ein eftir,
ein eftir í örinu,
en samt er ég glöð.
Ég finn ég er frjáls!!
frjáls frá glötun!