Vinur minn sendi mer þetta og mer finnst þessi visa snilld.

Það var í rimmu risa og dvergs
að risinn flatur lá.
Gamalmennið Guðni Bergs
gerði usla þá.


Fergusonur fagnar ekki
frétta vill þó eitt:
Hvur er þessi rammi rekkier
risti oss svo beitt?


Í Ríó fussar Ferdínandi
ferlega hásum rómi:
hann er víst ofan af Ísalandi
andskotinn sá frómi!


Bekkhamur þá bætti við
í býsna háum tóni:
þeir vilja hann ekki í í landsliðið
lúðarnir á Fróni!


Fýkur mjög í Ferguson
fólið líkist skessu;
auðvitað er engin von
að ég trúi þessu!


Ef böðul voran þeygi þarf
þvílíkt skíta lið
Er einskisvert mitt ævistarf
og illt að líta við.