i

nótt sáir fræjum sínum
í skjólsælan garð

fræin skjóta rótum
í rauða mold

svartar rósir


ii

flauelsmjúkum höndum
fer myrkrið um augu mín
uns flugbeitt morgunskíman
ræðst á mig
-og sker út skugga


iii


ljóshvít hendi
óstyrk
teygir sig
til að snerta mig

ljóshvít hendi
styrk
teygir sig
í skugga minn


iv

þegar ljósið fjarar
blæður skuggunum út

þegar ljósið fjarar
spyrja hafblá augu:

er ekkert eftir
nema nóttin?