Ég sit hér, ásamt þramur öðrum
einhverjum sem ég þekki ekki.
það er það góða við strætó.

Ergilegur bílstjórinn,
tekur við við drukknum manni
sem stóð ekki í fæturna.

TVÖ HUNDRUÐ KRÓNUR!
ha? saggdiru tvöhudrkronur? Rrrrán
öskrar hin drukkni, mér til skemmtunar

Loks sest hann
fyrir miðjan vagnin
Óþefurinn ætlar allt að drepa.

Tvær ungar stúlkur koma inn næst,
klæddar eins og hórur á góðum degi,
eru 16 en líta út eins og 12

Flissandi, kafnandi úr gelgju,
talandi um helgina og Erp
og nýja kærastan sem er 22 og er ekkert eins og Bent.

Smá tími líður,
kafnandi úr óþef og fáfræði
stend ég upp, fer.

Frekar vil ég ganga
í rigninguni
með sköfuna á lofti
og bensínbrúsa í hinni.