Skógurinn er skrítinn
og ég er stuttfættur
en þó er ég með lítinn
nestispoka sem er ekki í hættu.

Ég er orðinn geðveikt glaður
og syng með glæsibrag.
Ég er sko stór og mikill maður
og syng mitt fagra lag.

Ég er orðinn svaka svangur
og sest á mosa að éta.
En síðan sést á grænum reyk
að ég var smá að freta.

Ég fer bráðum að fara heim
og flott væri að leggja sig.
Mig dreymir dagdraum um að ég sé úti í geim
en þá dauðinn sækir mig.

Ég er ekki kominn heim
ég er á himnum.

SlimShady
Ef þú átt eitthvað vantalað við mig….slepptu því að segja það.