Svitinn rann hægt
niður rauðar kinnarnar.
Hjörtun slógu hratt
en óreglulega.
Spennan var rafmögnuð,
hún lá í loftinu.
Þeir horfðust óttaslegnir í augu,
þar til annar þeirra
rauf kæfandi þögnina
um leið og hann lék lokaleikinn;
,,Skák og mát!" glumdi í salnum.
Örvæntingarfullur leitaði hinn
að útgönguleið fyrir kónginn.
Og sjá; skyndilega rak hann augun í taflmann
sem auðveldlega gat bjargað kónginum,
hann slapp fyrir horn, andvarpaði, brosti.
Skákin hélt áfram um óákveðinn tíma.