Er doðinn færist yfir
líkama og sál
slokknar öll mín gleði
öll mín heitu bál

Drunginn tekur völdin
og ræður ríkjum þá
eiturtungum og spjótum
byrjar hann að sá

Ég veit að þetta endar
með blóði á hendi mér
og feluleik með sárin
sem engin annar sér
Höf/Dagga