Háhýsi fara að hrynja
Heimurinn byrjar að stynja
Þriðja heimsstyriöldin hefst
Tækifæri ei gefst
Það slokknar á ljósum
Við getum ei fundið ilm af rósum
Engum er hlíft, ekki einum
Sú næsta háð með spýtum og steinum
Kjarnorkuveturinn kemur
Þjóðarmorð konungurinn fremur
Ég vil ekki deyja
Verð bara að þegja
Þegar sótið er sest
Sjáum við engan gest
Lítið lifir
Við lítum yfir
Eftir allt þá vissi enginn
Hvernig sigurinn var fenginn
Við byggjum allt upp á nýtt
Allt er endurnýtt
Við horfum fram á við
Fögnum okkar alheimsfrið
En ekki einn, ekki neinn vissi
Hví?